Útrásarvíkingur í felum?
2. júní 2009
Engin ummæli
Nú er það svo að ég veit ekkert um húsið á myndinni né bílinn sem er svartur Range Rover. Ekki veit ég heldur neitt um eigendurna enda skiptir það engu máli. Hitt veit ég að myndin er skemmtilega táknræn. Hún sýnir eyðilegt hús við ystu strendur og svartan lúxusjeppa fyrir utan. Það fyrsta sem mér datt í hug var “útrásarvíkingur í felum.”
Staðkunnugir geta áttað sig á því hvar myndin er tekin – ég ætla ekkert að upplýsa um það.
Myndina tók Fred Karrenberg.
