Safn

Safn fyrir ágúst 2009

Hveravellir – Hvítárnes

18. ágúst 2009 admin Ein ummæli
Upphaf nýrrar gönguleiðar frá Hveravöllum í Þjófadali

Upphaf nýrrar gönguleiðar frá Hveravöllum í Þjófadali

Milli Hveravalla og Hvítárness liggur fjölfarin göngu- og reiðleið sem stundum er nefnd Gamli Kjalvegur vestari. Liggur leiðin um Þjófadali og Þverbrekknamúla og er oftast gengin í þremur áföngum, en þá er hver dagleið um 12-14 kílómetrar. Engar tiltakanlegar hækkanir eða hindranir eru á leiðinni, sama í hvora áttina er gengið, og því verður þetta að teljast fremur auðveld þriggja daga ganga.

Einn helsti gallinn leiðinni hefur fram til þessa verið sá að á milli Hveravalla og Þjófadala lá leiðin eftir þeim vegarslóða sem þar á milli liggur og þótti flestum göngumönnum sá leggur göngunnar frekar óspennandi. Það ætti því að teljast nokkur bót að í sumar var stikuð ný leið milli Hveravalla og Sóleyjardals; sú leið liggur um Kjalhraun sunnan Stélbratts og er 7,5 kílómetri að lengd. Úr Sóleyjardal að Þröskuldi eru svo 2,5 kílómetrar eftir vegslóðanum og þaðan um kílómetri að skálanum í Þjófadölum. Samtals er nýja leiðin því um 11 kílómetrar og er það kílómeters stytting frá því sem áður var.

Myndin hér að ofan er tekin þar sem nýja leiðin hefst, en þá er beygt til vestur af stígnum sem liggur milli Öskurhóls og gamla sæluhússins. Er þarna nýtt gömul kindagata, en einnig eru fléttaðar inn í leiðina gamlar vörður og hlaðin fjárrétt í hraunhól, ekki ósvipuð Eyvindarrétt. Hafa göngumenn nú þegar lýst yfir mikilli sinni með leiðina og hef ég fulla trú á að hún muni njóta vinsælda í framtíðinni.

  • Share/Bookmark
Tags: