Hoffell

1. júní 2009 Skrifa ummæli Sýna ummæli

Myndirnar hér að neðan eru teknar í vettvangsferð ferðamálanema Háskólans á Hólum til Hafnar í Hornafirði. Þar tóku m.a. á móti okkur hjónin Ingibjörg og Dúddi í Hoffelli, en þau reka þar gistingu fyrir ferðamenn.

Umhverfið er hreint út sagt stórkostlegt. Úr Vatnajökli skríður Hoffellsjökull, Hoffellsáin rennur framhjá stúttfull af spriklandi sjóbirtingi, heitt vatn sprettur úr jörðinni og fyllir heita potta, gömul silfurbergsnáma er í fjallinu og hreindýrahjarðir trítla um jörðina. Gestrisni þeirra hjóna er síðan sér partur út af fyrir sig; eftir fjögurra daga heimsókn líður manni eins og Hoffell sé heimili að heiman.

Fyrir þá sem eru á ferð um landið mæli ég hiklaust með heimsókn í Hoffell. Og þeir sem gista mega gjarnan gera ráð fyrir því að gista í fleiri en eina nótt því þarna er nóg við að vera. Nánari upplýsingar um það á www.hoffell.com.

Gistiheimilið í Hoffelli.

Gömlu útihúsin.

Nýrri Hoffellsbærinn til vinstri og Miðfell til hægri. Vðborðsfjall (538m) í bakgrunni.


Í eldhúsinu á gistiheimilinu.

Eitt af 6 herbergjum.

Annað herbergi.

Og það þriðja.

Ferðamálanemar ásamt kennara í éljagangi við rætur Hofellsjökuls.

Dúddi í Hoffelli gerir sig líklegan til að blessa hópinn.


Undir kletti við Hoffell eru fjórir heitir pottar sem tilvalið er að baða sig í, sama hvernig viðrar.

Jöklasýninguna á Höfn eiga allir að heimsækja ef þeir á annað borð hrífast af jöklum landsins.

Ferðamálanemar í hrakningum á tjaldsvæðinu á Höfn.

Sandra og Stjáni Hólanemar ásamt Ingibjörgu í Hoffelli, sem er einnig fjarnemi á Hólum.

Hreindýr á rúntinum norðan Almannaskarðs.

  • Share/Bookmark
  1. Engin ummæli enn
  1. Engin trackback enn.