Króatía

16. júní 2008 Skrifa ummæli Sýna ummæli

Male Ucka er yfirgefið smáþorp, 1000 metra yfir sjávarmáli á Ucka fjalli. Þangað liggur þröngur malarvegur og tiltölulega lítið um ferðamenn nema þá helst göngufólk og fjallahjólreiðamenn. Skiltið sýnir upplýsingar um 17 km langa hjólreiðaleið sem liggur niður fjallið frá þorpinu.

Male Ucka.

Male Ucka.

Oportajl er bær við ströndina nærri borginni Rijeka og eftir því sem mér skilst vagga króatískrar sólstrandarmenningar í rúmlega 100 ár.

Skemmtileg upplýsingamiðstöð skammt vestan Oportajl.

Króatískar bjórtegundir. Bjórinn þar er mjög góður og sá lengst til hægri, Favorit, var í sérstöku uppáhaldi hjá mér, 5,2% að styrkleika með mikilli bragðfyllingu.

Brijuni-eyjar. Þar voru byggð sex lúxushótel á 19. öld en vegna eyðileggingar í síðari heimstyrjöld eru þar nú aðeins þrjú. Tito byggði sér líka lúxusvillu á einni eyjanna sem nú er afdrep forseta Króatíu.


Á Brijuni er líka herstöð og voru hermenn í stanslausum ferðum á milli lands og eyja í þessum pramma.

Hringleikahúsið í Pula.

Rómverjar réðu yfir Pula og byggðu þetta hringleikahús sem er eitt af þeim stærstu sem enn eru uppistandandi. Enn í dag er það notað til sýningahalds en í stað þess að mönnum sé kastað fyrir ljónin eru þar leiksýningar og tónleikar.

Aðaltorgið í Zagreb, höfuðborg Króatíu.

Dómkirkjan í Zagreb.

Postojna hellarnir í Slóveníu.

Lublijana.

Lublijana.

Kastalinn í miðborg Lublijana.

Ecstasea, lúxussnekkja Roman Abromovich, að sigla frá bryggju í Rovinji. Skipið er knúið áfram af fjórum rúmlega 3.000 hestafla díselmótorum og einum rúmlega 30.000 hestafla þotuhreyfli. Samkvæmt orðrómi er áhöfnin að mestu mönnuð fyrverandi sérsveitarmönnum úr bresku SAS herdeildinni. Takið eftir þyrlunni á efsta dekkinu.

Rovinji.

Rovinji.

Limski-fjörður, dýpsti fjörður Istria skagans.

Motovun, gamalt borgvirki/bær í vínræktarhéruðum Istria.

Innan virkisveggja Motovun.

Horft af virkisvegg Motovun. Umhverfið er nokkuð dæmigert fyrir innsveitir Istriaskagans.

Króatískar “Corollur”. Renault 4 GTL er sennilega algengasti bílinn í Króatíu, og þessir fjórir prýddu bílastæði í Motovun.

Ég prófaði að láta bát draga mig í fallhlíf…

… og fékk þá þetta ágæta útsýni yfir miðbæ Porec.

200 metra langur spotti þýddi að flughæðin var 100 metrar.

Á leið inn til lendingar. Framundan ströndin við hótelið.

  • Share/Bookmark
  1. Engin ummæli enn
  1. Engin trackback enn.