Jökulkrókur
Skáli Ferðafélags Íslands í Þjófadölum. Húsið var reist 1939 og er, rétt eins og flest félagsheimili úti á landi, pínulítið að utan en risastórt að innan. Þarna er svefnpláss fyrir 12 manns.
Komnir út úr Þjófadalakjaftinum og stefnan tekin suður fyrir Þverfell í átt að Fremra-Sandfelli og Hrútfelli.
Fagrahlíð ber nafn með rentu; suðurhlíðin þéttvaxin gróðri í vel rúmlega 800 metra hæð yfir sjávarmáli.
Komið norður fyrir Fögruhlíð og horft í vesturátt til Hengibjarga.
Fúlakvísl þar sem hún rennur norðan Fögruhlíðar.
Fossar í norðanverðum Jökulkrók.
Myndarlegasti fossinn er sennilega um 30-40 metra hár.
Horft suðurvestur yfir Jökulkrók í átt að Langjökli. Fjallkirkja trónir upp úr jöklinum.
Horft frá sama stað í átt til Hengibjarga.
Horft fram af fossbrúninni.
Á toppi Rauðkolls sem gnæfir yfir Þjófadölum, 1075 metra yfir sjávarmáli. Kjalfell og Kerlingarfjöll í fjarska.










