Austurdalur

2. júní 2009 Skrifa ummæli Sýna ummæli

Á leiðinni fram að Gilsbakka var stoppað á Keldulandi og þáði hópurinn þar smá hressingu.

Gísli leiðsögumaður, Kobbi kennari, Hlín kennari og Stefán bóndi á Keldulandi.

Hópurinn að hlýða á smá ráðleggingar í upphafi ferðar.

Séð ofan í gil Austari-Jökulsár.

Gísli gægist ofan í Merkigil.

Horft frá brún Merkigils fram eftir Bakkadal.

Staldrað við á staðnum þar sem Helgi bóndi á Merkigili hrapaði til bana í janúar 1997.

Hægt er að fara yfir Merkigil á þremur stöðum og þessi er sú hættuminnsta.

Nestispása.

Horft norður yfir Jökulsána að Skatastöðum. Þar var byggt nýtt íbúðarhús 1979 (fremst til vinstri á myndinni), en bærinn fór í eyði aðeins fjórum árum síðar.

Göngubrú rétt sunnan við Ábæjarkirkju.

Hópefli í skjóli kirkjunnar að Ábæ.

Gengið meðfram Jökulsánni til baka í átt að Skatastöðum.

Kláfurinn sem hópurinn var ferjaður í yfir ána.

Allir komust yfir ána heilir á húfi, og í rútuna sem beið okkar á Skatastöðum.

  • Share/Bookmark
  1. Engin ummæli enn
  1. Engin trackback enn.