Heljardalsheiði-vetur

2. júní 2009 Skrifa ummæli Sýna ummæli

Myndirnar sem hér fylgja eru teknar í ferð 2. og 3. árs ferðamálanema Hólaskóla yfir Heljardalsheiði þann 17. október 2008. Lagt var upp frá vaðinu yfir Kolku og gengið yfir heiðina alla leið að Atlastöðum í Svarfaðardal. Þar beið okkar svo bíll sem ferjaði hópinn í tveimur hollum heim að Húsabakka í sömu sveit. Ferðin gekk vel þrátt fyrir töluverðan snjó á leiðinni og vorum við átta tíma að ganga þessa 16 kílómetra leið.

Ferðin var liður í námskeiðinu Útivist og upplifun og nutum við leiðbeinslu kennara okkar, Jakobs Frímanns Þorsteinssonar, við skipulagningu og framkvæmd ferðarinnar. Gist var í gamla skólahúsinu á Húsabakka og tíminn nýttur, ekki bara til að slaka á eftir erfiða ferð, heldur líka til að fara yfir ferðina og draga af henni lærdóm. Einnig fengum við óvænta heimsókn heimakvenna sem fræddu okkur um allt sem við vildum vita um bútasaum. Hinn svarfdælska brús eigum við hins vegar enn ólærðan.


  • Share/Bookmark
  1. Engin ummæli enn
  1. Engin trackback enn.