Garðar og Náttfari
LANDNÁMA
Litlar heimildir eru um þá Garðar Svavarsson og Náttfara í fornritum, helstu heimildirnar er að finna í Landnámu. Í fyrsta kafla hennar segir eftirfarandi:
“Maður hét Garðar Svavarsson, sænskur að ætt; hann fór að leita Snælands að tilvísan móður sinnar framsýnnar. Hann kom að landi fyrir austan Horn hið eystra; þar var þá höfn. Garðar sigldi umhverfis landið og vissi, að það var eyland. Hann var um veturinn norður í Húsavík á Skjálfanda og gerði þar hús.
Um vorið, er hann var búinn til hafs, sleit frá honum mann á báti, er hét Náttfari, og þræl og ambátt. Hann byggði þar síðan, er heitir Náttfaravík.
Garðar fór þá til Noregs og lofaði mjög landið. Hann var faðir Una, föður Hróars Tungugoða. Eftir það var landið kallað Garðarshólmur, og var þá skógur milli fjalls og fjöru.”
Aftur er síðan minnst á Náttfara og Garðar í 73. kafla landnámu:
“Þorsteinn höfði hét maður; hann var hersir á Hörðalandi; hans synir voru þeir Eyvindur og Ketill hörski. Eyvindur fýstist til Íslands eftir andlát föður síns, en Ketill bað hann nema báðum þeim land, ef honum sýndist síðar að fara. Eyvindur kom í Húsavík skipi sínu og nam Reykjadal upp frá Vestmannsvatni; hann bjó að Helgastöðum og er þar heygður.
Náttfari, er með Garðari hafði út farið, eignaði sér áður Reykjadal og hafði merkt á viðum, en Eyvindur rak hann á braut og lét hann hafa Náttfaravík.”
“GARÃÂAR OG NÁTTFARI”
Jón Sigurðsson í Yztafelli kynnti sér sögu þeirra út frá bæði bókum og staðháttum og skrifaði heimildarskáldsöguna “Garðar og Náttfariâ€Â. Í bókinni setur Jón fram margar áhugaverðar kenningar byggðar á rannsóknarvinnu sinni. Þær helstu eru að Náttfari hafi sjálfráður orðið eftir á Íslandi og að hann hafi vikið úr Reykjadal af fúsum og frjálsum vilja. Jón telur líklegt að þrællinn og ambáttin sem fylgdu Náttfara hafi verið bundin sifjum og í bók hans eru þau feðgin.
Um bústað Náttfara í Reykjadal segir Jón í eftirmála bókar sinnar (bls. 166):
“Ekki var vistlegt í Naustavík í illviðrum. Tvennt hlaut Náttfari mest að meta, er hann valdi sér bólstað: Gott skjól í þéttum skógi og góða veiði í námunda. Hann kannaði héraðið. Landnáma segir, að hann hafi numið Reykjadal, en að fornu náði Reykjadalsnafnið um dalinn allan til sjávar. Bezta veiðistöðin var Laxá og nágrenni hennar. Austan við Múlaheiði er slétt þurrlendi um þveran dalbotn. Það hefur efalaust verið vaxið skógi að fornu. Þar fyrir sunnan er ágætt veiðivatn og víða sef með ströndum, en að norðan lygnir kílar og sefibryddar tjarnir. Hér hefur verið hið mesta fuglaver, en skammt að fara að Laxárfossum, sem heftu fiskgöngu. Þetta land heitir ennþá Fagranes, og ætlum við þar bólstað Náttfara og nafnið frá honum. Það er næstum óhugsandi, að sá, sem varð að lifa á veiðum einvörðu, hafi valið sér bólstað sunnan við vatnið í Reykjadal.
Eyvindur Þorsteinsson byggði á móunum í miðjum dal, þar sem gott var til beitar í báðum hlíðum og engjar nægar með ánni. Hann kom með kvikfénað. Stórum var þar verra til veiða en í Fagranesi, en þó nokkur veiði í vatninu og ánni. Nágrannar Náttfara í norðri voru ribbaldar: í Rauðuskriðu, Mýlaugsstöðum og á Grenjaðarstað.Allir sóttu þeir á veiðistöðvar hans, meðan þeir áttu fátt fénaðar. Eftir langt einræði gat Náttfari ekki unað við þröngbýli. Hann flutti í sinn fyrsta bólstað, Naustavík í Náttfaravíkum. Þar er gyrt frá öðrum byggðum af bólgnum sæ og háum hamrafjöllum. En þar var gnótt gæða og börn hans uppkomin.
Ekki geta fornrit um niðja Náttfara. Hvergi getur heldur um kvonfang landnámsmanna í Reykjadal, Eyvindar og Ketils. Jafnríkur höfðingi og Áskell goði er móðurlaus í sögunum. Hví þá þessi þögn? Skýringin er varla nema ein. Konur landnámsmanna í Reykjadal voru ekki af höfðingjaættum. Ég hygg þær dætur Náttfara. Söguriturum þótti ekki til koma að rekja ætt til írskrar ambáttar og húskarls frá Svíþjóð.”
NÁTTÚRUNAFNAKENNINGIN
Þórhallur Vilmundarson hefur sett fram þá kenningu að mörg örnefni á Íslandi sem tengd séu hinum og þessum mönnum eigi í raun rætur sínar að rekja til staðhátta eða náttúrufars. Samkvæmt náttúrunafnakenningunni getur verið að persónan Náttfari hafi aldrei verið til í raunveruleikanum, heldur hafi hún spunnist í kringum örnefnið Náttfari, en svo nefnist þrístrengdur hóll við ósa Purkár sem er ljós að lit og lýsir upp í tunglsljósi. Er vert að hafa þetta í huga þegar menn velta tilvist Náttfara fyrir sér.