Náttfaravíkur í myndum

12. janúar 2007 Skrifa ummæli Sýna ummæli

Myndirnar hér eru teknar í sitt hvorri ferðinni. Í júlí 2003 fór ég í flugferð með Eiði móðurbróður mínum og var ætlunin að skoða Náttfaravíkur og næsta nágrenni úr lofti. Með í för var myndavél og smellti ég í gríð og erg á allt það sem fyrir augu bar. Í framhaldinu setti ég svo nokkrar myndir á netið ásamt smávægilegum skýringatexta, og þótti mér ekki veita af því sáralítið var þá að finna um Náttfaravíkur á netinu. Sú síða er löngin horfin en þess í stað eru Náttfaravíkur eitt meginþema heimasíðu minnar í dag.

Hinar myndirnar eru frá Verslunarmannahelginni 2004 en þá fór 30 manna hópur á sjö jeppum áleiðis í Náttfaravíkur. Ekið var upp hjá Nípá og yfir Skarðið niður í Kotadal, yfir Purká og eftir jeppaslóða alla leið norður á Naustavíkurkamb. Af kambinum var gengið niður í Naustavík þar áð var í hálfa klukkustund og húsið skoðað í krók og kima. Var síðan gengið í norður, upp fyrir Skálavík, og þaðan niður á Vargsnes. Eftir að við höfðum skoðað okkur vel um á nesinu var haldið til baka, aftur stoppað í Naustavík og nestið klárað, og í þetta skiptið var koníak með því. Að því loknu var ekið heim.

Ferðin tók alls 9 klukkustundir. Jeppaslóðinn frá Nípá til Naustavíkur er seinfarinn og vorum við um 2 klukkustundir á leiðinni. Gangan úr Naustavík í Vargsnes tók um 1½ klukkustund en rösklegar var gengið til baka og hafðist það á rétt rúmum klukkutíma.


Horft til suðurs eftir Kotadal. Í miðri mynd glittir í Kotajökul.


Purká rennur til sjávar. Vinstra megin við ósinn sést ljósi líparítkletturinn.


Ekið yfir Purká á vaði.


Purkárvaðið frá öðru sjónarhorni.


Vegurinn eftir Kotadal er krókóttur og seinfarinn.


Horft úr lofti yfir húsið í Naustavík.


Naustavíkurhúsið séð frá kambinum.


Húsið í Naustavík.


Horft til suðurs í átt að Naustavík og Ógöngufjalli.


Skálavík úr lofti.


Skálavík af láði.


Vargsnes séð úr lofti.


Vargsnes.


Rauðavík.


Skálavíkurhnjúkur.


Hágöng syðri.


Hágöng.


Gönguhópurinn í Naustavík.

 

 

  • Share/Bookmark
  1. 24. júlí 2009 á 14:52 | #1

    Frábærar myndir. Takk kærlega fyrir

  1. Engin trackback enn.