Kolbeinsdalur-sumar

2. júní 2009 Skrifa ummæli Sýna ummæli

Þetta er u.þ.b. eins langt og ég vildi hjóla inn dalinn; þarna hefur Kolbeinsdalurinn beygt til suðausturs en í vestri er Almenningsháls nokkuð brattur og hár, þar vestur af liggur Víðinesdalur aflíðandi alla leið niður að Víðinesi og Hólum.

Slóðin liggur eitthvað lengra inn eftir dalnum en hún var dálítið grýtt og sífellt blautari þannig að þetta má bara bíða til haustsins, þegar hún hefur þornað.

Vinstra megin er Ingjaldshnjúkur (1182 m) og Ingjaldsskál. Fyrir miðri mynd Tungnahryggur (1062 m), sitt hvoru megin við hann liggja Austurdalur og Vesturdalur og fyrir botni þeirra Tungnahryggsjökull. Hægra megin heitir Ármannsfell (rúmir 1000 m) sem frjálslega mætti túlka sem austurhlið Hólabyrðu.

Lögun Ingjaldshnjúks og skálarinnar vakti mikla athygli mína, hvernig hryggurinn sveigist og beygist.

Fyrir hálfgerða rælni gekk ég frá veginum niður að Kolku og kom þá í þetta fallega gil.

Þarna hefur Kolka brotið sér leið í gegnum fagurrauðan berggang (innskot, eða hvað þetta nú heitir).

Horft í norðvestur eftir gilinu, Heljarfjall (1096 m) fyrir miðri mynd.

Á þessari mynd sést náttúrulega stíflan betur.

Kolka í vexti. Hlýindi undanfarna daga hafa gert það að verkum að rennsli hefur aukist mjög og þarna breiðir hún vel úr sér yfir eyrarnar. Horft í vesturátt út Kolbeinsdal, í áttina að Sauðárkróki.

Hingað og ekki lengra. Ég hjólaði yfir nokkrar af minni kvíslunum en sú nyrsta ólmaðist rauðbrún og grafin og var ekki fýsileg viðureignar. Heljarbrekkur í baksýn.

  • Share/Bookmark
  1. Engin ummæli enn
  1. Engin trackback enn.