Elliði
Þar sem Víðinesdalur gengur austur úr Hjaltadal skilur fjallið Elliði Víðinesdalinn frá Kolbeinsdal. Þann 7. mars 2007 gekk ég ásamt félögum mínum í göngutríói Hólapilta, Sigurði og Andra, á fjallið sem frá Hólum séð lætur ekki mikið yfir sér. Við keyrðum okkur upp á hálsinn sem skilur Hjaltadal frá Kolbeinsdal og gengum síðan nokkurn veginn frá þeim punkti sem myndin hér að neðan er tekin upp meðfram girðingunni og síðan langleiðina austur fjallstoppinn. Var gangan mátulega erfið; örlítið strembnari en útlit var fyrir en engin ofurraun. En það var samt gaman að horfa af toppinum niður í Kolbeinsdal því að það virkaði sem þverhnípt niður og mátulega mikið hægt að treysta snjóhengjunum við fjallsbrúnina.
Elliði; horft til austurs af Hálsi. Vinstra megin er Kolbeinsdalur, hægra megin Víðinesdalur og þar glittir í Hólabyrðu. Hæsti punktur Elliða er 894 m yfir sjávarmáli en upphafspunktur af Hálsinum er í 231 m.
Siggi mundar myndavélina og Andri fylgist forviða með.
Hólabyrða séð frá Elliða. Stallurinn í miðri Byrðunni beint framundan er Gvendarskál.
Andri.
Andri í apahlaupi upp eitt skarðið í fjallinu.
Siggi á útkíkkinu yfir Kolbeinsdal. Hnjúkar í bakgrunni og Kolka þar undir.
Horft í vestur eftir Elliða.
Horft af Elliða inn á Heljardal sem gengur þarna inn til vinstri. Vinstra megin við hann er Reitsfjall (1118m) en hægra megin Heljarfjall (1096m).
Horft af Elliða niður á Fjall í Kolbeinsdal.
Horft í vestur af Elliða. Andri og Siggi í fjarska.
Sama og á undan, nema félagarnir nær.
Andri í einu af a.m.k. þremur skörðum sem þarf að þvera á toppi Elliða. Þau eru engir ægilegir faratálmar en þó brattari en myndin gefur til kynna.











