Gvendarskál

2. júní 2009 Skrifa ummæli Sýna ummæli

Gvendarskál er í Hólabyrðu ofan Hóla. Gvendarskál varð til við framhlaup úr Hólabyrðu og eru hólarnir sem Hólar draga nafn sitt af þaðan tilkomnir. Samkvæmt GPS-mælingu er Gvendarskál í 575-585 metrum yfir sjávarmáli; hún er hærri þar sem merkta gönguleiðin kemur upp í hana og lægri við Gvendaraltari. Gönguhækkun er því um 400m frá Hólum og tekur um 60 mínútur að ganga upp ef ekkert er stoppað á leiðinni.

Samkvæmt munnmælum á Guðmundur biskup góði að hafa gengið berfættur upp í Gvendarskál á hverjum föstudegi og beðist fyrir við bjarg þar er nefnist Gvendaraltari.

Hér að neðan eru myndir teknar í þeim ferðum sem ég hef farið síðan í janúar 2007; nokkurs konar kvittanir fyrir komu minni þar sem gestabókin við Gvendaraltari hefur ekki alltaf verið til staðar yfir vetrartímann. Einhvern tímann var það markmið mitt að arka þangað í hverjum mánuði skólaársins en sú göfuga ætlan hefur ekki gengið eftir.

14. janúar 2007.

6. febrúar 2007.

28. mars 2007.

24. apríl 2007.

10. maí 2007.

5. janúar 2008

  • Share/Bookmark
  1. Engin ummæli enn
  1. Engin trackback enn.