London

31. janúar 2008 Skrifa ummæli Sýna ummæli

Dean og Tanis fyrir utan heimili sitt í Kensington-hverfi.

Þau eru auðvitað með flatskjá og fullt af fótbolta á SkySports.

“Svalir” íbúðarinnar eru á þaki hússins. Hér er horft af þeim yfir til Notting Hill.

Við Dean horfðum á bikarúrslitaleik Chelsea og Manchester United á risastórum sportbar við Trafalgar-torg.

Út um allan bar voru sjónvörp þar sem hægt var að horfa á leikinn, m.a. í háskerpuútsendingu. Reyndar sá ég engan mun, en það skýrist kannski af því að við vorum mættir á barinn fyrir hádegi.

Fyrir utan barinn eftir leik. Engin svaka stemmning, enda voru úrslit leiksins ekki skemmtileg (a.m.k. ekki fyrir okkur United-aðdáendur).

Frá British Museum.

Freddie “lifir”!

Götumynd frá horni Tottenham Court Road og Oxford Street.

Rigning á Oxford Street.

Sól á Portobello Road.

Hmm, Lotus eða eitthvað….? Hann “lúkkar” alla vega vel og “sándaði” ekki síður.

Kensington Gardens.

Íkornagrey sem rétt slapp lifandi frá snaróðum Terrier hundi í garðinum.

Labrador að kæla sig í Round Pond í Kensington Gardens, enda var hitinn vel yfir 20°C.

Albert Memorial.

Royal Albert Hall.

Gömul bíldrusla fyrir utan Royal Albert Hall.

Götumynd úr nágrenninu.

“Neil Armstrong” á Science Museum. Fyrstur manna til að stíga fæti niður í Mývatnssveit í geimbúningi?

Gastúrbínuknúinn Rover á Science Museum. Þessi setti heimsmet fyrir slíka bíla árið 1952 þegar hann náði 245 kmh. Ekki byði ég í það á þessum dekkjum!

McLaren bíll Mika Hakkinens, en þessi fékk inn á Science Museum fyrir þær sakir að að Hakkinen missti stjórn á honum á 330 kmh í Þýskalandskappakstrinum 1999 en þrátt fyrir það er hann nánast stráheill. Þykir bíllinn því gott dæmi um tæknina og öryggið í Formúlu 1 .

  • Share/Bookmark
  1. Engin ummæli enn
  1. Engin trackback enn.