Kjölur
Horft til norðurs við upphaf Kjalvegar að sunnanverðu. Bláfellsháls framundan.
Jarlhettur eru tignarlegar í suðurjaðri Langjökuls. Þetta er sú austasta þeirra séð frá Bláfellshálsi.
Eina óbrúaða vatnsfallið á Kili!
Á Hveravöllum.
Eyvindarrétt í Kjalhrauni.
Stallurinn vinstra megin er eystri gígbarmur Strýtna, en svo nefnast gígarnir sem Kjalhraun rann úr fyrir um 8.000 árum síðan. Í baksýn er Hrútfell sem einnig hét Regnbúðajökull meðal Skagfirðinga.
Horft af austurstallinum yfir Strýtur. Í baksýn Langjökull og Þjófadalir.
Fálki á flugi yfir Kjalhrauni.
Landsbjörg var með hálendisvakt í júlí og fyrri hluta ágúst og hýstum við björgunarsveitamenn frá Siglufirði, Varmahlíð, Sauðárkróki og Eyrarbakka. Þeir gerðu ýmislegt fleira en að hjálpa erlendum ferðamönnum í ógöngum, hér eru t.d. félagar úr sveitinni í Varmahlíð að setja saman útiborð fyrir okkur Hveravallabændur.

Skagfirskir hestamenn í heimsókn.
Hópur breskra sjálfboðaliða á vegum Umhverfisstofnunar, en þau komu og unnu í þrjá daga hjá okkur við endurbætur á göngupalli og göngustígum. Gott og þarft starf sem breytti ásýnd staðarins til muna.
Óli girðingavöruður að hreinsa heita pottinn. Menn létu það ekki stoppa sig í að taka bað enda 20° hiti úti og bara notalegt í “fótabaðinu”.
Skrautlegt hrossastóð rétt norðan Blönduvirkjunar.
Smalahundurinn Loppa á ferð með mér í girðingareftirliti við Litla-Oddnýjargil í Þjófafjöllum.
Finnarnir Maja og Teddy unnu með okkur um tíma í sumar.
Oft var þröng á þingi á háönninni í sumar en þá var þvi bara bjargað með því að troða fólki í hvern krók og kima. Hér sést 18 manna hópur Ítala frá Avventura nel Mondo snæða í eldhúskróknum.
Á meðan gerði enn einn Skagfirðingahópurinn sér glaðan dag í Nýja skála.
Glatt á hjalla á skrifstofunni: Kulli og Óli.
Loppa lét fara makindalega um sig á fjórhjólinu þegar við fórum með rúgbrauð til baksturs.
Þrjár fernur af brauði komnar í hverinn sem hefur verið sérstaklega útbúinn til matreiðslu. Þarna var ekki einungis bakað brauð heldur moðsuðum við líka lambalæri í honum.

Bensínstöðin á Hveravöllum. Þar fást ekki beikonvafðar pulsur. Bara bensín og olía. Í gámnum er viðgerðaaðstaða fyrir Landsamband íslenskra vélsleðamanna.
Horft af Þjófadalafjöllum yfir sunnanverða Hundadali þar sem Fúlakvísl rennur um.
Á toppi Rauðkolls (1.076m). Að sunnanverðu eru Þjófadalir og þangað er snarbratt niður. Ef vel er að gáð sést lítill gulur depill fyrir miðri mynd en það er skáli Ferðafélags Íslands í Þjófadölum.
Horft af Rauðkolli yfir á Hengibjörg. Langjökull er þar fyrir aftan.
Horft til norðurs yfir Hundadali og upptök Fúlukvíslar.
Vegurinn inn að Beinhóli. Þangað þarf að klöngrast stóran hluta leiðarinnar yfir leiðinda hraunslóða áþekkan því sem sést á myndinni. Víða er hann þó mun verri en þetta og ég komst aldrei á leiðarenda því að ég sprengdi dekk á hjólinu áður en þangað var komið. Næst mun ég því fara gangandi frá þeim stað er hraunið tekur við.
Alex frá ferðaskrifstofunni Exodus á Ítalíu. Hann kom fjórum sinnum til okkar í sumar með hópa á Landrover jeppum sem teknir voru á leigu á Íslandi.
Öskurhóll blæs gufustrók upp í loftið 24 tíma á sólarhring, alla daga ársins með tilheyrandi hávaða. Bakvið hann er Bláhver sem er blárri en Bláa lónið en fullheitur til baða.
Horft frá hverasvæðinu til skálanna.
Eyvindartóft, en hana hlóð Fjalla-Eyvindur og hafðist við í um tíma. Skammt frá er Eyvindarhver en hann nýttu Eyvindur og Halla til matreiðslu. Í baksýn eru hús Veðurstofunnar.
Jónsi að prófa sig á hesbaki.
Lagt af stað í reiðtúr frá Hveravöllum í Svartárbotna. Myndin er tekin í upphafi ferðar í Tjarnardölum. Þjófadalafjöll í baksýn og Stélbrattur á vinstri hönd.
Áð í Sóleyjardal.
Við Þjófadalakjaft, Kjalfell í bakgrunni. Ásta, Ása og Hjalti frá Íshestum.
Horft frá gerðinu við Þjófadalakjaft inn til Þjófadala og Rauðkolls.
Áð nærri Svartárbotnum og Hofsjökull í bakgrunni. Þarna er kjörlendi fyrir hesta og vilja sumir meina að Grána Reynisstaðabræðra hafi fundist þarna en ekki þar sem heitir Gránunes 100-200 metrum sunnar.
Glatt á hjalla í Gíslaskála í Svartárbotnum: Ævar, Eyjólfur, Einar, Ásgeir ásamt dóttur Ásgeirs og barnabarni.
Anna Lísa trússari og Ásta leiðsögumaður.
Ásgeir, Hjalti og Einar, en Ásgeir hélt upp á sjötugsafmæli sitt í ferðinni og fékk viðurkenningarskjöld frá Íshestum.




































