Fjallabak
Lagt í ‘ ann skammt norðan Gunnarssteins…
Á leið frá Hungursfit yfir í Krók, væntanlega er þetta sem heitir Laufaleitir.
Hort frá Krók til baka í átt að Tindfjallajökli þaðan sem Hvítmaga rennur.
Við Krók. Hvítmaga hægra megin en vinstra megin hefur hún sameinast Markarfljóti.
Krókur á Laufaleitum, afrétti Rangvellinga: leitarmannaskálinn, kamarinn og göngubrúin yfir Markarfljótið.
Eftir að við höfðum farið yfir vaðið á Hvítmögu komu tveir “furðufuglar” á KTM-endurohjólum íklæddir hermannagöllum og gáfu sér óratíma í að kanna vaðið. Við nenntum ekki að bíða eftir að þeir hefðu sig yfir og héldum bara áfram…
Við Þverárgil mætti okkur hins vegar heil lest af brynvögnum. Þarna reyndist vera á ferðinni danski herinn í einhvers konar æfingarferð.
Bryntrukkarnir virtust vera hin sæmilegustu farartæki.
Slakað á í Þverárgili.
Aftur hlé…
Torfahlaup; um það rennur Markarfljót. Þar á Torfi nokkur að hafa stokkið yfir með stúlku í fanginu. Bróðir stúlkunnar eða faðir (sögnum ber ekki saman) á að hafa stokkið á eftir en ekki náð og hangið í hríslu á gilbarminum. Önnur sagan segir að Torfi hafi bjargað bróðurnum en hin að hann hafi höggvið hrísluna og faðirinn hrapað til bana.
Reykjadalir. Þar er mikill jarðhiti og margir leir- og brennisteinshverir.
Horft í átt að Hrafntinnuskeri. Erfitt er að fanga litadýrðina og andstæðurnar á mynd.
Á heimleið og byrjað að rigna.













