Old Trafford
The Bishop Blaize pöbbinn er staðsetttur rétt við Old Trafford og þar fá aðgang eingöngu þeir sem hafa miða á völlinn.
Stemmningin á The Bishop Blaize er ólýsanleg; nánast hver einasti kjaftur í húsinu tekur undir þegar stuðningssöngvar eru sungnir.
Hornið handan götunnar.
Sir Matt Busby Way liggur niður að Old Trafford.
Hugdjarfur City aðdáandi umkringdur United mönnum þótti fjölmiðlaefni.
Einnar mínútu þögn var fyrir leik þegar þeirra sem fórust í flugslysinu 1958 var minnst.
Anderson á blússi upp kantinn.
Giggs gerir sig kláran að taka boltann á kassann.
Ronaldo felldur í vítateignum en ekkert dæmt.
Ronaldo.
Sir Alex brúnaþungur á leið úr leikhléi.
Vidic hreinsar fram völlinn. Því miður dugði ekki að setja hann í sóknina á lokamínútunum.
Fyrir utan Old Trafford daginn eftir leik. Á myndinni sést United liðið í sínum síðasta leik fyrir flugslysið.
Blóm, treflar, fánar og fleira til minningar um þá sem fórust.
Norðurstúkan á Old Trafford daginn eftir leik.
Þessi karl, sem jafnframt hefur yfirumsjón með suðurstúkunni, lóðsaði okkur um völlinn í skoðunarferðinni.
Í búningsklefa United.
Nýr Tevez?
“No comment!” Fyrir framan þetta skilti eru sjónvarpsviðtöl SkySports alla jafna tekin eftir leiki.


















